Fara í efni

Sumarhús FSS

Fjölbrautaskóli Suðunesja óskar eftir tilboðum í sumarhús til flutnings

Húsið er byggt af nemendum Fjölbrautaskóla Suðurnesja veturinn 2021 til 2022. Húsið er 56 m2 að grunnfleti með millilofti sem reiknast um 9 m2 en gólfflötur er um 22 m2. Húsið er fullklárað að utan, klætt með 32 mm bjálkaklæðningu. Alusink er á þaki. Veggir að innan eru klæddir með gipsi og einnig loft í holi og herbergjum. Loft yfir stofu og risi eru panelklædd. Á gólfi er 22 mm nótar gólfplötur. Húsið er án endanlegra gólfefna, innréttinga og innihurða. Rafmagn er fullklárað með tilbúinni rafmagnstöflu og ljósum þar sem við á. Húsið er einangrað með 200 mm steinull í gólfi , 150 mm steinull í útveggjum og þak er einangrað með 200 mm steinull. Gluggar eru allir með tvöföldu k-gleri.

Húsið verður til sýnis í samráði við Gunnar Valdimarsson s: 8995163.

 

Tilboðum skal skila rafrænt á heimasíðu Ríkiskaupa fyrir kl. 13:00 fimmtudaginn 19. maí n.k. merkt Sumarhús 21735.

Uppfært 6. maí 2022