Fara í efni

Umhverfisskilyrði í útboðum

Umhverfisskilyrði þurfa að byggja á faglegri þekkingu á innkaupalöggjöf og umhverfismálum auk þess að vera raunhæf. Mikilvægt að þekkja markaðinn vel áður en skilyrði eru sett fram. 

Þau þurfa að uppfylla eftirfarandi grundvallaratriði:

  • Skilyrðin komi fram í útboðsgögnum og útskýrt hvernig þau verði metin.
  • Skilyrðin séu sett fram í samræmi við meginreglur ESB m.a. um gegnsæi, jafnræði bjóðenda og meðalhófsregluna.
  • Skilyrðin sé hægt meta á hlutlægan og magnbundinn hátt.
  • Fram komi hvaða gögn skuli fylgja með tilboði til að sanna uppfyllingu skilyrða.

Athugið að hægt er að setja fram umhverfisskilyrði með ýmsum hætti; sem lágmarksskilyrði, matsskilyrði eða sem samningsskilyrði. Best er að fylgja skilgreindum umhverfisskilyrðum sem til eru fyrir ýmsa vöruflokka, svo sem umhverfisskilyrðum ESB

Íslensk þýðing á umhverfisskilyrðunum var fyrst sett fram árið 2012 á vegum verkefnisins Vistvæn innkaup sem var samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga.  Og eru það þau sem hér birtast. Hugsanlegt er að skilyrðin hafi verið uppfærð á síðu Evrópusambandsins en  ekki í þýðingunni.

Uppfært 16. mars 2022