Fara í efni

Sameiginlegt innkaupaorðasafn, CPV kóðar

Sameiginlega innkaupaorðasafnið er listi yfir alls kyns vörur, þjónustu og verk. Staðsetning í innkaupaorðasafninu ræður því hvernig innkaupin eru flokkuð og þarf alltaf að geta númers, CPV (Common Procurement Vocabulary) -kóða   í innkaupaorðasafni í TED-auglýsingum.

CPV (Common Procurement Vocabulary) kóðar voru þróaðir af Evrópusambandinu sérstaklega fyrir opinber innkaup. Megintilgangur þeirra er að aðstoða innkaupafólk við að flokka tilkynningar um samninga sína á samræmdan, hátt og að hjálpa birgjum að finna tilkynningarnar sem vekja áhuga þeirra með því að nota staðlaðan orðaforða.

- Reglugerð Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sameiginlegt innkaupaorðasafn 

- Upplýsingar um innkuaupaorðasafnið (á ensku) 

- Leitarvél CPV-kóða hjá BiP (Business Information Publications) á ensku

Uppfært 19. september 2022