Fara í efni

Stuðningur við nýsköpun í opinberum sparnaði á Nýsköpunardegi hins opinbera

Á nýliðinni Nýsköpunarviku (e. Iceland  Innovation Week) fór fram Nýsköpunardagur hins opinbera (NHO23) fyrir fullum sal í Veröld - húsi Vigdísar. Á deginum kynntu fjölmörg sprota- og nýsköpunarfyrirtæki nýjar og spennandi lausnir sem fela í sér tækifæri til sparnaðar í opinberum rekstri og nýr samstarfssamningur var undirritaður um opinbera nýsköpun milli Ríkiskaupa og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Samningurinn, sem gildir til eins árs og felur í sér stuðning við verkefni Ríkiskaupa um nýsköpun í opinberum sparnaði. Markmið verkefnisins er að draga úr ríkisútgjöldum með áherslu á að innleiða lausnir sem skapa sparnað í opinberum rekstri. Þá er það vilji beggja aðila að auka samstarf um nýsköpun og þróun hjá hinu opinbera. Samningurinn er mikilvægur þáttur í innleiðingu nýskapandi hugsunar í ríkisrekstri og hvernig hægt er að hugsa kerfi út frá nýjum lausnum.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, flutti opnunarávarp á nýsköpunardeginum. ,,Við eigum ekki og getum ekki gert hlutina eins og við höfum alltaf gert þá, verðum að nýta nýsköpun og nýjar lausnir, ekki bara af því að þær eru betri heldur eru þær líka hagkvæmari. Okkar ábyrgð sem stjórnmálamanna er að hugsa hvernig við förum sem best með fjármuni," sagði ráðherra. ,,Þar sem vel er hlúið að nýsköpunarumhverfi spretta upp lausnir sem taka á úrlausnarefnum okkar samtíma."

Hér er að finna upptöku allra erinda og nokkrar myndir frá deginum