Fara í efni

Samningur um smíði þriggja nýrra björgunarskipa í höfn

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum, í kjölfar vel heppnaðs samkeppnisútboðs sem Ríkiskaup önnuðust. 

Um var að ræða samkeppnisútboð með forvali og möguleika á viðræðum. Hugmyndin bakvið samkeppnisútboð var að sía út hæfustu þátttakendurna, sem væru líklegastir til að uppfylla þarfir kaupanda sem best. Gífurlegur áhugi var fyrir útboðinu en yfir 100 aðilar sóttu útboðslýsingu og á annan tug forvalsþátttökutilkynninga bárust.

Áhugasömum þátttakendum var í janúar á þessu ári boðið að taka þátt í forvali þar sem hæfi þeirra var metið auk þess sem veitt voru stig fyrir tæknilega eiginleika boðinna skipa. Fimm þátttakendum var í kjölfarið boðið að taka þátt í útboði í seinni fasa, þ.e. þeim KewaTec frá Finnlandi, Swede Ship frá Svíþjóð, Efinor Allais frá Frakklandi, Rafnar og Trefjum frá Íslandi. Valforsendur útboðsins voru: 50% verð, 40% mat sérfróðrar dómnefndar og 10% stig úr forvali. Tilboðin sem bárust voru talin uppfylla þarfir kaupanda svo vel að hann kaus að fara ekki í viðræður, svo sem honum hefði verið heimilt.

Undirbúningur útboðsins hófst haustið 2020, forvali lauk í mars á þessu ári og seinni fasa lauk með töku tilboðs KewaTec í júní 2021. Engar kærur bárust.

KewaTec, sem annast smíðina, er í Kokkola í vestur-Finnlandi og hefur verið starfrækt síðan 1998. Fyrirtækið hefur víðtæka reynslu af smíði vinnu-, slökkvi-, björgunarbáta og farþegaferja.

Smíði á fyrsta skipinu hefst í lok október á þessu ári, en það leysir af hólmi 28 ára gamalt skip sem keypt var nýtt til Vestmannaeyja árið 1993. Afhending á því fer fram fyrir í júnílok 2022, nánar tiltekið á goslokahátíð það ár. Annað skipið verður síðan afhent fyrir lok árs 2022 og það þriðja fyrri part ársins 2023.

Kaupverð skipanna þriggja er 855.000.000 krónur. Ríkið fjármagnar helming þess og Slysavarnafélagið Landsbjörg og björgunarsveitir hinn helminginn. Aðkoma ríkisins byggir á samkomulagi félagsins við dómsmálaráðuneytið um að ríkið fjármagni verkefnið að hluta en í upphafi árs rituðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra, auk dómsmálaráðherra undir viljayfirlýsingu um endurnýjun skipaflotans næstu tíu árin. Hún gerir ráð fyrir endurnýjun sjö skipa til viðbótar næstu sjö árin eftir að smíði fyrstu þriggja skipanna lýkur.

Athöfn vegna undirritunar samningsins fer fram í ágúst á þessu ári en þá munu allir aðilar, sem að verkefninu koma, hittast á Íslandi og fagna þessum stóra áfanga aukinnar björgunargetu á hafsvæðinu umhverfis Ísland.