Fara í efni

Öndunarvélar fyrir gjörgæsludeildir Landspítala

Á næstunni mun fara fram útboð á vegum Ríkiskaupa á öndunarvélum fyrir gjörgæsludeildir Landspítala.

 Áður en til útboðs kemur mun væntanlegum bjóðendum gefast kostur á að kynna hvaða möguleika þeir geta boðið frá framleiðendum á slíkum búnaði fyrir kaupanda.

 Áhugasamir sendi inn ósk um þátttöku í kynningunni fyrir 4. október 2018, á eftirfarandi tölvupóstfang verdfyrirspurnir@landspitali.is merkt: „Öndunarvélar fyrir Landspítala– ósk um kynningu“

 Reikna má með að hver þátttakandi fái um 1 klst. til kynninga. Kynningar munu fara fram í viku 42 í október 2018.

Markmið fundarins er að fá upplýsingar um nýjungar sem í boði eru bæði með tilliti til klínískrar notkunar, gæða og hagræðingar. Leitað er eftir lausnum og tillögum framleiðanda varðandi nýja og bætta meðferðarmöguleika sem búnaður frá þeim gefur kost á.  Einnig teningarmöguleika við önnur kerfi spítalans.