Nýr rammasamningur um almenn matvæli í auglýsingu
Samningur um almenn matvæli 08.02 rennur út í júní og er nýr samningur kominn í auglýsingu á utbodsvefur.is með áætlaðan opununardag 30. júní. næstkomandi.
Nýr samningur er með breyttu sniði en til viðbótar við upplýsingar um lágmarksaflslátt (%) fyrir hvern hluta, er óskað eftir sérverði fyrir valdar vörur sem stofnanir ríkisins hafa keypt í hvað mestu magni samkvæmt innkaupagreiningu Ríkiskaupa.
Við mat á innsendum tilboðum mun sérverð einstakra vara gilda 30% en vægi lágmarksafsláttar lækkar þá samhliða í 70%.
Kaupendur verða upplýstir sérstaklega um þessi sérverð í þeim tilgangi að auka gagnsæi og upplýsingaflæði ásamt því að tryggja betri yfirsýn yfir hagkvæmustu kaupmöguleika innan samnings.
Þessi aðferðafræði hefur verið mikið notuð af stórum mötuneytum á almennum markaði og hefur gefið góða raun.
Útboðinu er skipt í 18 hluta/flokka og einn eða fleiri USPSC flokka og undirflokka (class), sjá eftirfarandi skiptingu:
- Hluti 1 Mjólkurvörur og smjör
- Hluti 2 Egg og eggjavörur
- Hluti 3 Matarolíur og feiti
- Hluti 4 Súkkulaði, sykur og sætuefni og konfekt/sælgæti
- Hluti 5 Kryddblöndur, kryddlegir, kraftar, sósur, súpur og þrávarnarefni
- Hluti 6 Brauð- og bökunarvörur
- Hluti 7 Tilbúnar matvörur
- Hluti 8 Niðursoðið grænmeti og ávextir
- Hluti 9 Baunir – ferskar, niðursoðnar og þurrkaðar
- Hluti 10 Drykkjarvörur
- Hluti 11 Kaffi og te
- Hluti 12 Kornvörur
- Hluti 13 Hnetur, fræ og þurrkaðir ávextir
- Hluti 14 Ferskir ávextir og ber
- Hluti 15 Frosnir ávextir og ber
- Hluti 16 Grænmeti – ferskt og þurrkað
- Hluti 17 Grænmeti – frosið
- Hluti 18 Næringardrykkir og vítamín, fæðubótaefni