Kaup ríkisins á rafmagnsbifreiðum
Tíu ríkisstofnanir hafa nú gengið frá kaupum á 15 rafmagnsbifreiðum í þrem flokkum. Kaupin voru gerð í kjölfar örútboðs á vegum Ríkiskaupa sem lauk um miðjan desember 2020. Síðast þegar sambærilegt örútboð fór fram árið 2017 voru keyptir 6 bílar.
Er þetta fyrsta sameiginlega örútboðið eftir að stefna ríkisstjórnarinnar um að allir bílar ríkisins verði vistvænir, nema öryggis- eða notkunarkröfur krefjist annars, var samþykkt í desember 2019.
Innleiðing vistvænni ökutækja er meðal aðgerða á aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Með því má draga úr heildarlosun ríkisins vegna ökutækja á skömmum tíma. Að auki er rekstrar- og vistferilskostnaður vistvænna bifreiða lægri.
Þeim stofnunum sem stefna að því að kaupa bifreið er skylt að taka þátt í sameiginlegum útboðum þar sem útboðslýsingarnar tryggja að keyptar verði vistvænar og hagkvæmar bifreiðar.
Miðað við heildar kostnaðaráætlun í ofangreindu örútboði og heildarverð tilboða sem bárust er væntur heildarávinningur kr. 9.835.846,-
Fleiri sambærileg útboð verða á árinu.