Fara í efni

Áætluð sala á varðskipinu Ægi - Markaðskönnun (RFI)

Ríkiskaup f.h. íslenska ríkisins áætla að selja varðskipið Ægi sem ekki er lengur í notkun á vegum Landhelgisgæslunnar.

Til að undirbúa söluferli er gerð  undanfarandi markaðskönnun sem ekki er skuldbindandi fyrir seljanda. Áður en tekin er ákvörðun um næstu skref í söluferlinu er óskað eftir hugmyndum um nýtingu skipsins og líklegt söluverðmæti.

Nánari upplýsingar er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign föstudaginn 6. nóvember 2020.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 6. janúar 2021.

Hugmyndum ásamt öðrum gögnum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 15. janúar 2021.

Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið

Auglýsing á utbodsvefur.is

Myndband tekið af Ægi í október 2020, yfirlitsmyndir og innanstokks.