Fara í efni

Rammasamningar

RK 18.02 Lögboðin ábyrgðartrygging ökutækja í ríkiseigu

  • Gildir frá: 01.06.2021
  • Gildir til: 31.05.2024

Um samninginn

Nýr rammasamningur um lögboðna ábyrgðartryggingu ökutækja í ríkiseigu tók gildi 1. júní 2021 til og með 31.05.2023. Heimilt er að framlengja samninginn 2 sinnum um eitt ár í senn (2024 og 2025), þannig að heildar samningstími verður að hámarki 4 ár.

Ríkiskaup hafa tekið ákvörðun um að framlengja núverandi samning um lögboðnar ökutækjatryggingar um eitt ár við Sjóva-Almennar tryggingar (Sjóvá-Almennar tryggingar hf), til 31.05.2024. Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar ítarlegrar markaðsgreiningar Ríkiskaupa og jákvæðrar endurgjafar frá aðilum samningsins.

Ný ökutæki koma upp á listum frá umferðarstofu fá sömu kjör og þau ökutæki sem fyrir eru í tryggingu (m.v. áhættuflokk). Verðbreytingar eru háð vísitölu ábyrgðartryggingar ökutækja og slysatryggingar ökumanns og eigenda. Almennar fyrirspurnir um innheimtu má senda á innheimta@sjova.is og vegna trygginga má senda á fyrirtaeki@sjova.is

Samningurinn tekur til kaupa á lögboðna ábyrgðatrygginga ökutækja í ríkiseigu. Samið var við einn seljanda.

Samningsverð og skilmálar eru aðgengilegir kaupendum á læstu svæði, undir flipanum "Skoða kjör", hér á vefsíðu samningsins fyrir RS-aðila.

Athygli er vakin á því að framrúðutrygging er ekki innifalin, en kaupendur hafa val um að bæta henni við.

Seljendur

Sjóvá
Kringlunni 5
Sími: 4402000
Tengiliður samnings
Heiður Huld Hreiðarsdóttir

Skoða kjör

Kaupendur geta skoðað kjör í samningi með því að skrá sig inn.