Völundur – MölUndur; samnýting jarðvegs við opinberar framkvæmdir
Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa hefur undirritað samstarfssamning við NetPower um hönnun hugbúnaðar og gagnagrunns sem miðar að því að opinberir framkvæmdaaðilar samnýti jarðveg sem fellur til við opinberar framkvæmdir.
Samningurinn snýr að hönnun á miðlægum gagnagrunni í formi smáforrits/vefviðmóts sem Ríkiskaup (og aðrir útboðsskyldir aðilar) geta óskað eftir að sé notað í jarðvegsframkvæmdum og lágmarka þannig kolefnislosun í þeim lið byggingaframkvæmda.
Hugbúnaðurinn sem hefur haft vinnuheitið Völundur mun í framtíðinni kallast MölUndur og er það talið lýsandi fyrir framtíðarnotkun gagnagrunnsins.
Markmið verkefnisins er að gefa notendum yfirsýn yfir framkvæmdarstaði á landinu og geti annað hvort nálgast jarðveg eða losað sig við jarðveg á nálæga verkstaði. Um er að ræða
nýsköpunarverkefni sem snýr að því að draga úr loftslagsáhrifum verklegra jarðvegsframkvæmda á vegum hins opinbera og stuðla að fjárhagslegu hagræði. Notendur eiga einnig að geta dregið úr grunninum upplýsingar um kolefnislosun og nýtt í græna bókhaldið.
MölUndur er samstarfsverkefni nokkurra opinberra framkvæmdaraðila en þeir eru Framkvæmdasýsla ríkisins, Vegagerðin, Veitur, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Kópavogsbær auk Ríkiskaupa. Mikill áhugi er á verkefninu og því standa vonir til að fleiri opinberir framkvæmdaraðilar sjái sér hag í að nýta sér gagnagrunninn sem verður gjaldfrjáls fyrir notendur.