Fara í efni

Tilkynning um sumarlokun Ríkiskaupa 24. júlí - 4. ágúst

Mynd Yanshu Lee
Mynd Yanshu Lee

Senn líður að sumri, lóan er komin og sól hækkar á himni og af því tilefni viljum við hjá Ríkiskaupum láta vita af fyrirhugaðri sumarlokun frá 24. júlí til og með 4. ágúst næstkomandi.

Sumarlokunin veitir okkur tíma til að njóta sumarblíðunnar og koma endurnærð til starfa í ágústmánuði.

Að gefnu tilefni hvetjum við ykkur til að hafa eftirfarandi í huga:

  • síðasti dagur til að senda inn verkbeiðni er 28.apríl ef möguleiki á að vera fyrir hendi að koma verkefninu í auglýsingu og ljúka því í júlí (einfalt verkefni).*
  • verkbeiðnir sem berast í maí eða síðar verða ekki settar í ferli fyrr en Ríkiskaup opna eftir sumarleyfi.

Ef spurningar vakna varðandi sumarlokunina, vinsamlegast hafðu samband við okkur á netfangið rikiskaup@rikiskaup.is.

Með ósk um gleðilegt sumar.
Starfsfólk Ríkiskaupa

*Fer eftir flækjustigi, tegund, gagnastöðu og fleira hvort það náist að klára verkefni fyrir júlí.