Fara í efni

Samstarf Ríkiskaupa og Háskóla Íslands á sviði opinberrar nýsköpunar

Björgvin Víkingsson og Jón Atli Benediktsson handsala samning um samstarf á sviði opinberrar nýsköpu…
Björgvin Víkingsson og Jón Atli Benediktsson handsala samning um samstarf á sviði opinberrar nýsköpunar.

Nýverið undirrituðu Björgvin Víkingsson forstjóri Ríkiskaupa og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands samning um samstarf á sviði opinberrar nýsköpunar. Markmið samningsins er að virkja nemendur og sprotafyrirtæki Háskóla Íslands enn frekar í leysa áskoranir í rekstri hins opinbera með nýsköpun.

Bæði Háskóli Íslands og Ríkiskaup hafa unnið ötullega að því að auka þátt nýsköpunar í samfélaginu, hvor stofnun með sínum hætti, og á grundvelli þess var ákveðið að efla samstarf þeirra um nýsköpun og þróun hjá hinu opinbera. Það er í takt við áætlanir stjórnvalda sem leggja mikla áherslu á að nýta nýsköpun í auknum mæli til að leysa verkefni hins opinbera á betri og hagkvæmari hátt.

Ríkiskaup er í forystuhlutverki við að þróa og efla opinbera nýsköpun í samvinnu við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Í því skyni hefur verið komið á öflugum vettvangi á www.opinbernyskopun.is þar sem m.a. má finna yfirlit yfir áskoranir í opinberum rekstri og fyrirtæki geta tengst opinberum aðilum til að ræða áskoranir og leita lausna. Ríkið kaupir vörur og þjónustu fyrir hátt í 300 milljarða á hverju ári og því er ljóst að mikil tækifæri felast í aukinni nýsköpun á sviði opinberra innkaupa.

Háskóli Íslands hefur í samstarfi við atvinnulíf á síðustu árum byggt upp bæði aðstöðu og stuðningsumhverfi fyrir frumkvöðla með það fyrir augum að skapa meiri verðmæti og velsæld fyrir þjóðina.

Samkvæmt samningnum munu Háskólinn og Ríkiskaup vinna saman að því að tengja nemendur við opinbera aðila í gegnum ýmis verkefni á vegum Ríkiskaupa, eins og Nýsköpunarmót og Nýsköpunardag hins opinbera, og þá er stefnt að því að Háskólinn verði í auknum mæli vettvangur viðburða á sviði opinberrar nýsköpunar.

Einnig verður þeim sprotafyrirtækjum sem tengjast HÍ boðið að taka þátt í verkefnum Ríkiskaupa eftir því sem efni standa til og þá verður leitast við að tengja hinar ýmsu deildir, stofnanir og þjónustueiningar skólans ásamt Vísindagörðum HÍ við nýsköpunarverkefni Ríkiskaupa.