Fara í efni

Sameiginleg innkaup ríkisins á rafmagnsbílum

Áherslur stjórnvalda og ný lög um opinber innkaup hafa aukið vægi vistvænna og samfélagslega ábyrgra innkaup frá sem áður var. Ríkiskaup sem miðlæg innkaupastofnun ríkisins hefur þegar stigið skref í þessa átt með því að taka tillit til umhverfissjónarmiða við gerð rammasamninga um kaup á vöru og þjónustu fyrir ríkið.

Nú á haustmánuðum buðu Ríkiskaup út innkaup á sjö rafmagnsbifreiðum (rafmagnsbílum) fyrir hönd fimm ríkisstofnana. Tilboð bárust frá þremur seljendum en tilboði var tekið frá BL í Nissan Leaf. Þær stofnanir sem tóku þátt að þessu sinni voru ÁTVR, Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Tollstjóri. Bifreiðarnar verða afhentar stofnunum á næstu vikum.

Það er vaxandi áhugi hjá stjórnendum og rekstraraðilum ríkisstofnana að auka vægi vistvænni bifreiða í þjónustu þeirra. Þannig eru jafnt og þétt að aukast kaup á rafmagns- og hybridbifreiðum, fólksbifreiðum, sendibifreiðum og jepplingum.  Í dag eru um 4,5% af bifreiðaflota ríkisins vistvænni bifreiðar. Ríkiskaup munu því fylgjast náið með þessari þróun og fylgja henni eftir eins og kostur er.