Fara í efni

Niðurstaða í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit

Niðurstöður dómnefndar liggja nú fyrir og hlutskörpust varð tillaga frá arkitektum Studio Granda. Í dómnefndaráliti kemur fram að tillöguhöfundar leggi áherslu á að styrkja þau borgarrými sem fyrir eru við jaðar reitsins. 2. verðlaun hlutu T.ark arkitektar og 3. verðlaun hlutu PKdM arkitektar. Sjá má umsögn um vinningstillögunar í (PDF skjal) PDF skjali með niðurstöðu dómnefndar.

Veitt voru verðlaun að heildarfjárhæð 14 milljónir kr. þar af voru fyrstu verðlaun 7 m.kr..

Gert er ráð fyrir að vígsla byggingarinnar geti orðið um áramótin 2019/20.

Samkeppnin fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.