Mútur í alþjóðlegum viðskiptum - Málstofa með Drago Kos
Aðalgestur málstofunnar verður Drago Kos, formaður Vinnuhóps OECD, sem fylgir eftir innleiðingu alþjóðlegs sáttmála á þessu sviði, gagnvart Íslandi og fjörutíu öðrum ríkjum. Meginmarkmið sáttmálans er að aðildarríkin geri það refsivert að bera mútur á erlenda opinbera starfsmenn og fylgi því eftir með fullnægjandi hætti. Erlend mútubrot eru vandamál í alþjóðlegum viðskiptum, þau skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja, eru skaðleg góðum stjórnarháttum og grafa undan efnahagsþróun.
Fulltrúar atvinnulífs og stjórnvalda taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Drago Kos að loknu erindi hans auk þess sem gestir geta borið fram spurningar úr sal.
Dagskrá:
1. Fulltrúi innanríkisráðuneytisins setur fundinn.
2. Kynning á efni málstofunnar. Sveinn Helgason, formaður Stýrihóps innanríkisráðuneytisins um eftirfylgni vegna innleiðingar alþjóðlegra samninga gegn spillingu og mútum.
3. Erindi Drago Kos – formanns Vinnuhóps OECD um erlend mútubrot – Working Group on Bribery.
4. Pallborð með þátttöku fulltrúa atvinnulífs og stjórnvalda.
5. Almennar umræður – spurningar úr sal.
Málstofan er öllum opin og þátttaka tilkynnist til Sveins Helgasonar sveinn.helgason@irr.is Einnig er hægt að skrá þátttöku frá klukkan 08:30 í andyri Þjóðminjasafnsins á sjálfan fundardaginn.