Fara í efni

Léttum lífið - umbætur í opinberri þjónustu

Miðvikudaginn 14. apríl kl. 10 heldur fjármála- og efnhagsráðuneytisins opinn viðburð með yfirskriftinni: Léttum lífið, spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu. Viðburðinum verður streymt á  facebook og á vef stjórnarráðsins

Meðal spurninga sem reynt verður að svara eru t.d. hvernig bætum við opinbera þjónustu og léttum líf almennings á sama tíma og við spörum skattgreiðendum pening? Hvaða hlutverk leika fjárfesting og áhersla á stafræna tækni í þessum efnum? Hvernig á opinber þjónusta að vera til framtíðar? 

Fjallað verður um hvernig Stafrænt Ísland gjörbreytir samskiptum og upplifun af hinu opinbera. Þá verður rætt hvernig nýta má nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í samfélaginu til að færa þjónustu nær fólki og draga úr sóun. Loks verður fjallað um hvernig við ætlum að spara milljarða með nýrri nálgun í innkaupamálum á sama tíma og við veitum óskerta þjónustu og gerum hana umhverfisvænni.

Auk frummælenda verður áhorfendum gefinn kostur á að deila sinni sýn á opinbera þjónustu til framtíðar.

Dagskrá viðburðarins:

  • Bjarni Benediktsson: Uppfærum stýrikerfið - opinberar umbætur og framtíðarsýn.
  • Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands: Stafrænt Ísland: Á fleygiferð inn í framtíðina.
  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara-Connect: Íbúarnir í fyrsta sæti.
  • Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa: Ávinningur fjölbreyttra innkaupa – ný innkaupastefna ríkisins um vistvæn innkaup.

Facebooksíða viðburðarins