Fara í efni

Fréttatilkynning frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu vegna farmiðakaupa stjórnarráðsins

"Útboð vegna sameiginlegra farmiðakaupa Stjórnarráðsins verður auglýst um helgina og er markmiðið að ná sem hagkvæmustum innkaupum að teknu tilliti til heildarkostnaðar og ferðatíma.  

Ítarleg undirbúningsvinna fór fram í aðdraganda útboðsins hjá Stjórnarráðinu, Fjársýslu ríkisins og Ríkiskaupum. Meðal annars var unnin greining á ferðatilhögun starfsmanna Stjórnarráðsins til að meta þær þarfir sem útboðið þyrfti að uppfylla.Greiningin leiddi í ljós að flestar ferðir eru til Kaupmannahafnar, Parísar og Brussel. Algengast er að ferðast sé til útlanda að morgni og heimför að kvöldi.  

Niðurstöður greiningarinnar voru nýttar í útboðsvinnunni og er útboðið sem nú er auglýst tvíþætt. Annars vegar er boðinn út tiltekinn fjöldi miða til og frá Íslandi á algengustu áfangastaði. Hins vegar er óskað eftir föstum afslætti á alla áfangastaði til og frá Íslandi, þ.e. afslætti á heildarviðskipti, sem nær einnig til tilboðsmiða.  

Meðal krafna sem gerðar eru í útboðinu eru að miðar verði á almennu farrými og að þeir skuli vera án vildarpunkta eða annarra fríðindakerfa. Gerð er krafa vegna neyðarsímaþjónustu, sem snýr bæði að bókun ferða og breytingum á flugi. Þá áskilur Stjórnarráðið sér rétt til að kaupa allt að 20% ferða utan samnings ef heildarkostnaður  á verði annars flugfélags er meira en 10% lægri en verð bjóðanda.  

Í tengslum við undirbúning útboðsins var ákveðið að endurskipuleggja verklag vegna innkaupa á flugmiðum hjá Stjórnarráðinu sem ætti að leiða til frekari hagkvæmni.  

Stefnt er að því að sameiginleg innkaup samkvæmt útboðinu hefjist í vor. Útboðið gildir til eins árs og við lok samningstímans verður lagt mat á hvernig til hefur tekist. Áformað er að þegar búið er að bjóða út flugfarmiðakaup fyrir Stjórnarráðið vinni verkefnisstjórn um nýjar áherslur í opinberum innkaupum að útfærslu fyrir stofnanir ríkisins í ljósi reynslunnar."

Fréttatilkynningin á vef ráðuneytisins (Opnast í nýjum vafraglugga)