14. febrúar 2020
Nýr rammasamningur um skrifstofuvörur
Ríkiskaup hefur í kjölfar útboðs gert rammasamning um skrifstofuvörur.
Samningurinn gildir frá 14.02.2020.
Rammasamningnum er skipt í tvo flokka.
-
Flokkur 1
Almenn skrifstofuvara. Samið var við Rekstrarvörur, Pennann og Egilsson/A4. -
Flokkur 2
Almenn skrifstofuvara hjá vernduðum vinnustað. Samið var við Múlalund , þar sem tekið er tillit til samfélagslegra krafna um aðgengi verndaðra vinnustaða.
Kaupandi skal kaupa inn í rammasamningi:
Með beinum kaupum hjá þeim seljendum sem samið verður við, á þeim kjörum og með þeim skilmálum sem eru skilgreindir í rammasamningnum.
Með örútboði ef fjárhæð innkaupa fer yfir 1. milljón kr. eða ef gerður er fastur samningur.