Fara í efni

Landhelgisgæsla Íslands auglýsir til sölu olíu

Um er að ræða um 300.000 lítra af flugvélaeldsneyti (steinolíu)  og er hún staðsett í austur olíubirgðastöð Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli.

 

Þetta er blandað flugvélaeldsneyti og er hluti þess frá því fyrir 2006. Að hluta til er um að ræða olíu sem var nýtt til að hreinsa lagnakerfin á Keflavíkurflugvelli og einnig er um að ræða eldsneyti sem hefur verið dælt af flugvélum eða hefur verið pantað og ekki nýtt þ.e. blandað íblöndunarefnum. Það er á ábyrgð kaupanda að meta og kanna gæðin, í samráði við starfsmenn birgðastöðvarinnar.

Óskað er eftir því að tilboðum í olíuna verði skilað til Ríkiskaupa í tölvupósti á netfangið utbod@rikiskaup.is merkt 40370 Sala á olíu fyrir LHG, í síðasta lagi þriðjudaginn 23. október næstkomandi kl. 12:00. Hægt verður að ná í olíuna dagana 29. október til 2. nóvember frá klukkan 08:00 til 16:00 í samráði við starfsmenn birgðastöðvarinnar og verður að vera búið að sækja alla olíuna í síðasta lagi 2. nóvember kl. 16:00.