Kynningarfundir vegna Augnsneiðmyndatækis (OCT) fyrir Augndeild Landspítala
Á næstunni mun fara fram útboð á vegum Ríkiskaupa á augnsneiðmyndatæki fyrir Landspítala.
Áður en til útboðs kemur gefst væntanlegum bjóðendum kostur á að kynna hvaða búnað þeir geta boðið.
Áhugasamir sendi inn ósk um þátttöku í kynningunni fyrir 10. október 2019, á tölvupóstfangið verdfyrirspurnir@landspitali.is merkt: „Augnsneiðmyndatæki fyrir Landspítala – ósk um kynningu“
Hver þáttakandi fær að hámarki 1,5 klst. fyrir kynningu og umræður. Kynningar munu fara fram eftir hádegi dagana 29. október og 5. nóvember. Kynningarnar fara fram á Landspítala.
Markmið fundarins er að fá upplýsingar um nýjungar sem í boði eru, bæði með tilliti til klínískrar notkunar, gæða og hagræðingar. Leitað er eftir lausnum og tillögum framleiðanda varðandi nýja og bætta meðferðar- og greiningarmöguleika sem búnaður þeirra býður upp á.