13. febrúar 2020
Fræðslu um örútboð 14.02. er frestað vegna veðurs
Vegna spár um ofsaveður á morgun föstudag 14. febrúar, hefur fræðslu um örútboð sem halda átti þá verið frestað.
Ný dagsetning er föstudagurinn 21. febrúar á sama tíma kl.14.00-15.00.
Fræðsla fer fram í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, í Allsherjarbúð. Að þessu sinni verður sent beint út frá fræðslunni.