Fara í efni

21598 - Rekjanleg sending á vegabréfum fyrir Þjóðskrá Íslands

Í dag kl 13.00 var opnun í ofangreindu útboði.

Það barst tilboð frá Íslandspósti ohf - ISK 31.246.950.

Kostnaðaráætlun er ISK 22.724.250.

Frávikstilboð voru ekki heimil skv. útboðsgögnum í þessu útboði.

Opnunarskýrsla felur ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu er einungis birt
heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val getur ráðist af fleiri valforsendum skv. útboðsgögnum.
Framsetning opnunarskýrslu er með fyrirvara um hugsanlega reiknivillu og að ekki er búið að meta
gildi tilboða. Komi í ljós að fjárhæðir í opnunarskýrslu eru ekki réttar miðað við framsetningu
tilboðsblaðs og leiðbeiningar um útfyllingu á því, verður leiðrétt opnunarskýrsla birt eins fljótt og
unnt er.

Ríkiskaup þakka fyrir þátttökuna.