Tenglasafn
Hvernig kaupi ég bíl?
Fjármálaráðuneytið hefur yfirumsjón með allri bifreiðaeign ríkisins og bifreiðanotkun þess eins og kveðið er á um í reglugerð nr. 580/1991. Kaup eða leiga á ríkisibifreiðum er óheimil án samþykkis fjármálaráðuneytisins. Bílanefnd sem fjármálaráðherra skipar, er fjármálaráðuneytinu til aðstoðar um framkvæmd reglugerðarinnar.
Umsóknir um kaup eða leigu á ríkisbifreiðum skulu sendar til ritara bílanefndar, sem hefur aðsetur hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Á hverju ári bjóða Ríkiskaup út bifreiðar fyrir ríkið, stofnanir þess og fyrirtæki. Í útboði fyrir árið var óskað eftir tilboðum í kaup og/eða rekstrarleigu á bifreiðum í nokkrum flokkum og í kjölfarið gerðir samningar um slíkt. Gert var ráð fyrir að notkun bifreiða væri í flestum tilfellum í samræmi við gerð þeirra, t.d. að fjórhjóladrifnir pallbílar væru notaðir við akstur utan vega og pallurinn notaður við flutninga allt að leyfilegri burðargetu. Boðnar fólksbifreiðar (A,B og C flokkar) skyldu hafa fengið a.m.k. fjórar stjörnur af fimm í árekstrarprófunum “European New Car Assessment Programme”, eða öðrum sambærilegum árekstrarprófunum. Gerð var krafa um að bifreiðar í öllum flokkum væru búnar dagljósabúnaði, aflstýri, samlæsingum, útvarpi, gólfmottum, venjubundnum staðalbúnaði og tveimur öryggispúðum í framsætum, að undanskildum bifreiðum í flokki E4. Ennfremur var þess krafist ABS hemlalæsivörn væri í öllum bifreiðum nema pallbílum. Í H2 flokki fólksflutningabifreiða skyldi vera hægt að breyta bifreiðum þannig að þær uppfylltu kröfur um farþegafjölda.
Sá búnaður sem boðinn var umfram áskilinn búnað skv. lýsingu hafði ekki áhrif á val bifreiðategunda við úrvinnslu tilboða.. Rekstrarleiga Leigutaki skal, auk mánaðarlegs leigugjalds, greiða bifreiðagjöld og ábyrgðartryggingu. Kaskótrygging er valkvæð enda ber leigutaki fulla ábyrgð á þeim tjónum sem hann kann að valda.
Meðan rekstrarleigusamningur er í gildi helst eignarréttur bifreiða hjá viðkomandi fjármögnunarleigu eða leigusala. Innifalið í rekstrarleigutilboði seljenda skal vera auka hjólbarðaumgangur, þannig að bifreiðinni fylgi bæði sumarhjólbarðar og negldir vetrarhjólbarðar. . Innfalið í rekstrarleigunni skal vera allt viðhald og þjónusta samkvæmt þjónustubók framleiðanda á rekstrarleigutímabilinu.
Verð og verðbreytingar Í samningsverði, í hvort sem um er að ræða kaupverð bifreiðar, eða rekstrarleigugjald á mánuði ásamt gjaldi á hvern umfram ekinn kílómeter, skal vera allur kostnaður og gjöld sem hljótast af skráningu og afhendingu bifreiðarinnar, hverju nafni sem þau nefnast. Virðisaukaskattur skal vera innifalinn í verði. Samningsfjárhæðir eru fastar. Verði meira en 3% hækkun á viðmiðunargengi, er seljendum heimilt að breyta gildandi kaupverði til hækkunar sem nemur 80% af breytingunni á genginu. Verði meira en 3% lækkun á viðmiðunargengi er seljendum skylt að breyta gildandi verði til lækkunar á samsvarandi hátt.
Það sama á við um rekstrarleigugjald á mánuði, nema þá skal m.v. 60% af breytingu gengis hvort sem er til hækkunar eða lækkunar. Samningsfjárhæðir eru miðaðar við tollafgreiðslugengi viðmiðunargjaldmiðils (innflutnings) á opnunardegi tilboða. Þannig geta samningsfjárhæðir orðið breytilegar frá upphaflegu samningsverði, frá mánuði til mánaðar. Verði á samningstímanum einhverjar hlutfallslegar breytingar á opinberum álögum á innflutningsverð bifreiðanna, er seljendum heimilt að breyta gildandi kaupverði til hækkunar og skylt að breyta því til lækkunar í sama hlutfalli af breytingunni og varðandi gengisbreytingar.
Mánaðarlegar leigugreiðslur samkvæmt rekstrarleigusamningi mega vera gengistryggðar með hefðbundnum hætti. Greiðslur Áður en bifreiðar eru afhentar skulu seljendur þeirra fá reikninga þeirra staðfesta hjá Ríkiskaupum. Hafi orðið breyting á samningsfjárhæð frá tilboðsverði, vegna gengisbreytingar umfram 3%, skal söluverð bifreiðanna miðað við afhendingarmánuð. Ríkiskaup mun greiða framlagða reikninga í beinu framhaldi af afhendingu bifreiða, og eigi síðar en 20 dögum eftir samþykki þeirra.
Þegar um er að ræða kaup á bifreiðum sem þarf að panta sérstaklega vegna sérbúnaðar o.þ.h. getur seljandi farið fram á að Ríkiskaup greiði við pöntun 20% kaupverðs. Seljendur rekstrarleigu, þ.e bifreiða á rekstrarleigukjörum til þriggja ára, skulu gera rekstrarleigusamninga við kaupendur í samræmi við pantanir Ríkiskaupa. Reikninga fyrir rekstrarleigugjaldi skal gefa út mánaðarlega og senda til leigutaka a.m.k 10 dögum fyrir gjalddaga. Seljendur skulu senda Ríkiskaupum afrit af rekstrarleigusamningi til staðfestingar, fyrir afhendingu bifreiðanna.
Í útboði Ríkiskaupa var samið um kaup og/eða rekstrarleigu út frá gefinni einkunn fyrir matsatriði. Valdar voru þær bifreiðategundir sem fengu hæstu einkunn í hverjum flokki, og aðrar þær sem lágu innan við 10% frávik frá hæstu einkunn, bæði til kaupa og til að taka til leigu á rekstrarleigukjörum. Kaupendur/rekstrarleigutakar, sem fengið hafa heimild til bílakaupa/rekstrarleigu samkvæmt ákveðnum flokki geta sjálfir valið hvaða tegund bifreiða þeir vilja innan hvers flokks.
Ríkiskaup sjá um innkaup bifreiða, fyrir hönd kaupenda/rekstrarleigutaka. Að fengnu samþykki bílanefndar senda væntanlegir kaupendur pantanir sínar til Ríkiskaupa sem staðfesta pöntun við söluaðila á grundvelli samninga við þá. Ef um rekstrarleigu á bifreiðum er að ræða þá skulu seljandi og leigutaki gera með sér rekstrarleigusamning í kjölfar skriflegrar pöntunar Ríkiskaupa.
Afhending, afhendingartími og afhendingarskilmála: Bifreiðar skulu afhentar hjá seljanda tilbúnar til notkunar, með skráningu og a.m.k. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Engin ógreidd gjöld mega hvíla á þeim. Seljandi skal vera reiðubúinn til að afhenda bifreiðina á þeim afgreiðslustað hans, sem er næstur heimilisfangi kaupanda.
