Ríkiskaup

Tenglasafn

Þjónusta við viðskiptavini

Hjá Ríkiskaupum starfar fólk sem hefur reynslu af ýmsum sviðum sem tengjast innkaupum. Sú þekking sem til staðar er hefur ekki byggst upp á einni nóttu. Gott samstarf við starfsmenn hjá fjölmörgum stofnunum hefur aukið vitneskju starfsmanna Ríkiskaupa um hinar ýmsu hliðar innkaupa.

Starfsmenn Ríkiskaupa vilja auka vitneskju um innkaup og miðla þeirri þekkingu sem til staðar er hjá fyrirtækinu. Þess vegna stendur stofnunum til boða að fá til sín ráðgjafa sem skoðar innkaupaferli viðkomandi með utanaðkomandi sýn.

Flókin verkefni verða oft mun meðfærilegri þegar horft er á þau með nýjum augum því fátt er nýtt undir sólinni og oft er hægt að stytta sér leið og spara þannig tíma og peninga með því að nýta reynslu annarra við svipuð verkefni.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica