Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Vesturbyggðar og Ofanflóðasjóðs óskar eftir tilboðum í verkið Snjóflóðavarnir í Vesturbyggð – Þvergarður á Patreksfirði. Verkið felst í að reisa snjóflóðavarnargarð (þvergarð) ofan við grunnskóla, kyndistöð og sjúkrahús á Patreksfirði. Umræddur varnargarður er um 300 m. langur og 10 – 12 m hár. Í verkinu felst einnig mótun yfirborðs skeringa flóðmegin við garða og uppsetning jarðhólfa í fláum hlémegin. Einnig felst í verkinu gerð vinnuvegar, varanlegra vegslóða, gangstíga, og uppsetning á grjóthleðslum. Jafnframt gerð drenskurða, lækjarfarvega, lagning ræsa, flutningur trjágróðurs, uppsetn. lýsingar, smíði setbekkja og jöfnun yfirborðs og ýmiss frágangur.
Helstu magntölur eru:
Klapparsprengingar / fleygun 3.000 m3
Fylling í jöfnunarlag undir styrkta fyllingu garðs 13.500 m3
Styrkt fylling í garð 14.000 m3
Fylling í fláafleyga 36.000 m3
Uppsetning jarðhólfa 450 m2
Styrkingakerfi – efni 2.700 m2
Styrkingakerfi – uppsetning 2.700 m2
Göngustígar – yfirborðslag 4.200 m2
Hellulögn ýmiskonar 400 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið í september 2014. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 24. júlí 2012.