29. ágúst. 2012 – nýjar fyrirspurnir og svör nr. 7. komnar inn.Áríðandi!!! Opnunarfundi hefur verið frestað til 06.09.12, Kl. 15:00sjá nánar í fyrirspurnum og svörum frá 03.08.12Ríkiskaup fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), óska eftir tilboðum í eftirfarandi vöruflokka:
1. Hjólastóla og aukahluti.
2. Gönguhjálpartæki og aukahluti.
3. Sérsmíðuð sæti, setur, bök og höfuðstuðningur í hjólastóla.
4. Hjálparmótora fyrir hjólastóla.
Nánari lýsingu á umfangi útboðsins er að finna í kafla 2 í útboðslýsingu sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa þriðjudaginn 8. maí nk.
Áskilinn er réttur til að skipta viðskiptum milli bjóðenda og/eða á milli vöruflokka. Jafnframt er bjóðendum heimilt að bjóða aðeins í hluta þeirra vara sem getið er á tilboðsblöðunum.
Kynningarfundur verður haldinn á tilboðstíma fyrir þá bjóðendur sem þess óska miðvikudaginn 30. maí 2012 kl. 14:00 í húsakynnum Ríkiskaupa.
Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 23. ágúst kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.