Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
1. Vera miðsvæðis og á jarðhæð.
2. Umferð að og frá húsnæðinu sé greið.
3. Húsnæði bjóði upp á að vínbúðin opnist beint inn af gangstétt eða bílaplani og jafnframt að vörumóttaka sé sér og opnist beint út, þó helst ekki frá sömu hlið.
4. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini og næg bílastæði fyrir þá.
5. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði fyrir starfsfólk.
6. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla og lyftarameð vörur skal vera góð.
7. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt (hlutföll rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur, veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um verslunarhluta húsnæðisins.
8. Hljóðdempun í verslun skal tryggja góða hljóðvist og birtulýsing skal vera 500-600 lux ef loftakerfi og lýsing er til staðar.
9. Góð aðstaða þarf að vera fyrir starfsfólk og allt aðgengi í húsnæðinu þarf að hæfa vel hreyfihömluðum.
10. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til slíks húsnæðis og vera samþykkt af þeim.
11. Leigutími húsnæðisins skal vera allt að 7 árum.
Áhugasamir skulu senda öll gögn um það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til skrifstofu Ríkiskaupa, Borgatúni 7, 105 Reykjavík fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 7. febrúar 2012.
Merkt : 15187 - Leiga á húsnæði fyrir vínbúð Á.T.V.R. í Grundarfirði
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:
1. Staðsetning.
2. Teikningar af húsnæði.
3. Afhendingartími.
4. Ástand húsnæðis við afhendingu (frágangur lóðar, veggja, lofta og gólfa í húsnæði).
5. Leiguverð (án vsk.) og skal það innifela allan kostnað sem til fellur.
6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á kröfuliði 1- 11 að ofan á leigutímanum.