ATH Búið er að setja inn á vefinn fyrirspurnir og svör í dag 17. febrúar 2012 ásamt fyrirspurnum, svörum og breytingum á samkeppnisgögnum frá 27 janúar 2012 Framkvæmdasýsla ríkisins f.h. Háskóla Íslands býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Um er að ræða u.þ.b. 4000 m² byggingu, en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar, sem hýsa mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og er staðsett vestan Suðurgötu í Reykjavík. Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 19. janúar 2012 en því síðara 7. mars 2012. Skilafrestur tillagna er 22. mars 2012, fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum. Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir kr. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013, framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES. Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is útboðsnúmer 15164, en til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum.
ATH! Smellið á eftirfarandi slóð: SKRÁNING.
Gögnin verður einnig hægt að nálgast, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3500 kr. greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.