Ríkiskaup

Útboð

15163 - Ræsting - Geðdeildarhús LSH við Hringbraut

Vegna misræmis í gögnum hefur verið ákveðið að fresta opnun til fimmtudags 9. febrúar nk. kl. 14:00
Nýr fyrirspurnarfrestur rennur út föstudaginn 3. febrúar og svarfrestur mánudaginn 6. febrúar.
Einungis þeim sem mættu á opnunarfund og skiluðu inn tilboði þann 2. febrúar er heimilt að skila inn tilboðum.

Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala, óska eftir tilboðum í ræstingu og hreingerningu á Geðdeildarhúsi LSH við Hringbraut.
Nettó stærð hússins er 6.581 m2 sem skiptist í 405 rými. Í þessu útboði er boðið út 6.365 m2 sem skiptist í 392 rými. Sjúkrahúsið er 4 hæðir og fjórar lyftur eru í húsinu. Starfsemi er allan sólarhringinn í hluta hússins, alla daga ársins. Vinnutími verksala við ræstingu skal að öllu jöfnu vera frá kl. 8:00 til kl. 17:00 .

Opnun tilboða er 2. febrúar 2012 kl.11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Stefnt er að undirritun samnings í febrúar 2012 og að vinna samkvæmt samningi hefjist 1. apríl 2012.

Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa

Verð á útboðsgögnum

2000 kr.

Kaupa útboðsgögn

Titill

  • Opnunarfundur: 9.2.2012, 14:00
  • Staða: úrvinnsla tilboða
  • Fyrirspurnarfrestur:31.1.2012
  • Svarfrestur: 3.2.2012
  • Samið við:


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica