Ríkiskaup

Útboð

15146 - Endurb.á rafl. í bygg.nr.179 Kefl.flugv. 3. áfangi

ATH. Ný tilkynning birt á vef 21.11.2011.

Framkvæmdasýsla ríkisins fh Landhelgisgæslu Íslands óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við breytingar á rafkerfum bygginga innan öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Í þessum áfanga fellst verkið í að breyta raflögnum í tilgreindri byggingu og laga hana að gildandi reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 – Raflagnir bygginga. Skipta skal um rafbúnað, innlagnarefni, tengla, rofa, lampa, mótora og dælur og setja upp nýtt fullbúið brunaviðvörunarkerfi. Leggja skal raflögn og setja upp tengla fyrir tæki í þvottahúsi, setja upp og tengja nýjar töflur og breyta lömpum. Þá skal breyta vatns-og loftræsilögnum og innanhússfrágangi í þvottahúsi. Byggingin er um 900 m² að stærð á einni hæð. Byggingin er skammt fyrir vestan byggingar 617 og 618 sem eru suður af gömlu flugstöðinni. Fara þarf inn um vaktað hlið til þess að komast á verkstað og skulu starfsmenn verktaka fá aðgangsheimild inn á vinnusvæðið og fylgja öryggiskröfum Landhelgisgæslu Íslands og þeim reglum sem gilda á öryggis- og varnarsvæðum.

Helstu magntölur eru:
Aftengja og fjarlægja:

Rafbúnað í aðaltöflu, greina-og stjórntöflum 6 stk
Rofa og tengla 210 stk

Ljós, lampa, rofa, spenna, handboða og bjöllur 190 stk
Dælur, þakviftur og heimilistæki 9 stk

Ídráttarvír og strengi 480 metrar

Nýr búnaður, uppsetning og breytingar :

Aðaltafla og heimtaug 1 stk
Greinatöflur 4 stk

Pípur 70 metrar

Tenglar og rofar 180 stk

Strengir 1.180 metrar

Ídráttavír 670 metrar

Dælur, viftur og þakviftur 9 stk

Lampar og reykskynjarar 183 stk.

Breyta kerfisloftalömpum 33 stk.


Vettvangsskoðun verður haldin 14. nóvember 2011, kl. 10.00 til 11.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 18. febrúar 2012.


Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.

Titill

  • Opnunarfundur: 25.11.2011, 11:00
  • Staða: lokið
  • Fyrirspurnarfrestur:18.11.2011
  • Svarfrestur: 21.11.2011
  • Samið við: ÍAV þjónusta ehf. tilboðsfjárhæð kr. 11.094.005


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica