Birt var ný fyrirspurn í þessu útboði merkt nr 12 þann 30 nóvember sl og er hana að finna í skjali merkt útboðsnúmeri og Questions and Answers. Áður birtar tilkynningar og fyrirspurnir eru frá 18 november svo hljóðandi að Bjóðendur athugi að breytingar hafa verið gerðar og skipt út tilboðsblöðum í excel skrá á vefsvæði útboðsins frá og með 18 nóv og gilda þær töflur sem þar koma fram í tilboðsblöðum frá og með þessum degi að telja Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala og Læknisfræðilegrar myndgreiningar óska eftir tilboðum í geislavirka ísótópa og skyldum vörum. Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöruflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og verða aðgengilega á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, eigi síðar en 25.10.2011