Ríkiskaup

Útboð

15129 - Hjúkrunarheimili Fjarðabyggð, Eskif.

NÝTT 14 október - fundargerð kynningarfundar 14102011 er aðgengileg hér fyrir neðan í pdf skjali
NÝTT 14 október - leiðretting 14102011 er aðgengileg hér fyrir neðan í pdf skjali
Framkvæmdasýsla ríkisins fh Velferðarráðuneytis og Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við nýbyggingu hjúkrunarheimilis Í Fjarðabyggð, við Dalbraut 1, Eskifirði. Byggingin er 1497 m² að grunnfleti og er brúttórúmmál hennar 7358 m³. Lóð hjúkrunarheimilis er 8190 m². Byggingin er á einni hæð og munu 20 hjúkrunarrými skiptast niður á 3 heimili en ýmis stoðrými tengjast heimilunum þremur. Búið er að skipta um jarðveg í hússtæðinu en byggingin er grunduð á malarpúða. Allir útveggir og berandi innveggir eru staðsteyptir og einnig gólf- og loftaplötur.
Lóð hjúkrunarheimilisins er hönnuð með sérþarfir aldraðra og hreyfihamlaðra í huga. Norðanvert á lóðinni er landið mótað í samræmi við nauðsynlegar ráðstafanir vegna ofanflóðahættu á svæðinu. Vakin er sérstök athygli á því, að verkkaupi hyggst fá alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt BREEAM á nýbygginguna, en slíkt vottunarferli tekur til allrar framkvæmdar­innar og allra verktaka á framkvæmdatíma.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 2508 m³
Steypustyrktarstál: 94.650 kg

Steypa: 950 m³
Þakklæðningar: 1970 m²

Veggklæðningar: 1209 m²

Vettvangsskoðun og kynningarfundur verður á Eskifirði 10. október 2011, kl. 13:00 til 14:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa. Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. júní 2013.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með mánudeginum 3. október 2011.
ATH. GÖGN EKKI SELD Á VEF.

Titill

  • Opnunarfundur: 18.10.2011, 14:00
  • Staða: lokið
  • Fyrirspurnarfrestur:11.10.2011
  • Svarfrestur: 14.10.2011
  • Samið við: Viðhaldsmeistarann ehf - Tilboðsupphæð kr. 528.736.166


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica