15125 - Breyt.á rafk.SP-húsa innan öryggsv.Keflflugv.2.áf.
Framkvæmdasýsla ríkisins fh Landhelgisgæslu Íslands óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við breytingar á rafkerfum bygginga innan öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Í þessum áfanga fellst verkið í að breyta raflögnum í tilgreindum byggingum, bílgeymslu og geymslum og laga þær að gildandi reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 – Raflagnir bygginga. Skipta skal um rafbúnað, innlagnarefni, tengla, rofa, lampa, setja upp og tengja nýjar töflur og breyta lömpum. Sérhver bygging er um 900 m² að stærð með alls 16 misstórum íbúðum á tveimur hæðum. Geymslur eru alls um 300 m² að stærð á einni hæð. Byggingar þessar eru skammt suður af gömlu flugstöðinni við sama veg að nafni Þjóðbraut. Fara þarf inn um vaktað hlið til þess að komast á verkstað og skulu starfsmenn verktaka fá aðgangsheimild inn á vinnusvæðið og fylgja öryggiskröfum Landhelgisgæslu Íslands og þeim reglum sem gilda á öryggis- og varnarsvæðum.
Helstu magntölur eru:
Aftengja og fjarlægja:
Aðaltöflu og rafbúnað í greinatöflum 23 stk
Rofa og tengla 1.450 stk
Ljós, lampa, rofa, spenna og reykskynjara 610 stk
Dælur, þakviftur og heimilistæki 124 stk
Nýr búnaður, uppsetning og breytingar :
Aðaltafla og heimtaug 4 stk
Greinatöflur 18 stk
Pípur 460 metrar
Tenglar og rofar 1.400 stk
Strengir 800 metrar
Ídráttavír 2.600 metrar
Dælur og þakviftur 12 stk
Lampar og reykskynjarar 480 stk.
Breyta lömpum 146 stk.
Vettvangsskoðun verður haldin 3. október 2011, kl. 10.00 til 11.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 10. febrúar 2012.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 27. september 2011.