Ríkiskaup

Útboð

15123 - Egilsstaðaflugvöllur jarðvinna á öryggissvæði.


Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óskar eftir tilboðum í verkið: Egilsstaðaflugvöllur, jarðvinna á öryggissvæði.


Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felur í sér jarðvegsskipti og lagningu efra burðarlags á um 150 m löngu öryggissvæði norðan flugbrautarenda. Einnig verða lagðar ídráttarlagnir og undirstöður fyrir flugbrautarljós.
Fjarlægja þarf malbik af um 3.600 m² svæði og urða í öryggissvæði til hliðar við flugbraut. Grafa þarf fyrir burðarlagi og er meðaldýpt uppgraftar um 0,4 m. Uppgreftri verður jafnað í nálæg öryggissvæði. Leggja skal 30 cm þykkt efra burðarlag með efni sem verkkaupi leggur til. Grafa þarf lagnaskurði og leggja í þá ídráttarrör. Setja skal niður steyptar undirstöður fyrir ljós meðfram öryggissvæðinu.

Helstu verkþættir og magntölur:
Gröftur um 2.500 m³
Efraburðarlag um 2.900 m³
Lagnaskurðir um 1.200 m
Brunnar (nýir og færðir) 5 stk
Ljósakollur (undirstöður) 12 stk

Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem eru aðengileg á heims Ríkiskaupa. frá og með miðvikudeginum 21. sept.

Tilboð verða opnuð 4.október 2011 kl. 15:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Titill

  • Opnunarfundur: 4.10.2011, 15:00
  • Staða: lokið / samningur
  • Fyrirspurnarfrestur:27.9.2011
  • Svarfrestur: 30.9.2011
  • Samið við:


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica