Ríkiskaup

Útboð

15118 - Borðbúnaður og eldhúsáhöld

Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi ríkisins á hverjum tíma, standa fyrir útboði vegna kaupa á borðbúnaði og eldhúsáhöldum. Heimilt er að bjóða í einstaka flokka útboðsins.

Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöruflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Gert er ráð fyrir að samið verði við fleiri en einn aðila um viðskipti þessi.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.

Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 7. febrúar 2012, kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


Titill

  • Opnunarfundur: 7.2.2012, 11:00
  • Staða: úrvinnsla tilboða
  • Fyrirspurnarfrestur:29.1.2012
  • Svarfrestur: 1.2.2012
  • Samið við:


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica