Ríkiskaup
15116 - Breyt.á rafk.SP-húsa innan öryggsv.Keflflugv.1.áf.
NÝTT 22 september - fyrirspurnir og svör 22.09.2011 eru aðgengileg hér fyrir neðan í pdf skjaliFramkvæmdasýsla ríkisins fh Landhelgisgæslu Íslands óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við breytingar á rafkerfum bygginga innan öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Í þessum áfanga fellst verkið í að breyta raflögnum í tilgreindum byggingum og geymslum og laga þær að gildandi reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 – Raflagnir bygginga. Skipta skal um rafbúnað, innlagnarefni, tengla, rofa, lampa, setja upp og tengja nýjar töflur.
Sérhver bygging er um 1.100 m² að stærð með 7 íbúðum á tveimur hæðum. Geymslur eru hvor um sig um 170 m² að stærð á einni hæð. Byggingar þessar eru skammt suður af gömlu flugstöðinni við sama veg að nafni Þjóðbraut. Fara þarf inn um vaktað hlið til þess að komast á verkstað og skulu starfsmenn verktaka fá aðgangsheimild inn á vinnusvæðið og fylgja öryggiskröfum Landhelgisgæslu Íslands og þeim reglum sem gilda á öryggis- og varnarsvæðum.
Helstu magntölur eru:
Aftengja og fjarlægja:
Aðaltöflu og rafbúnað í greinatöflum 32 stk
Rofa og tengla 1.940 stk
Ljós, lampa, rofa, spenna og reykskynjara 920 stk
Dælur, þakviftur og heimilistæki 205 stk
Nýr búnaður og uppsetning:
Aðaltafla og heimtaug 4 stk
Greinatöflur 28 stk
Pípur 510 metrar
Tenglar og rofar 1.800 stk
Strengir 800 metrar
Ídráttavír 2.700 metrar
Dælur og þakviftur 12 stk
Lampar og reykskynjarar 800 stk
Vettvangsskoðun verður haldin 19. september 2011, kl. 10.00 til 11.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 10. janúar 2012.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 13. september nk.