Ríkiskaup fyrir hönd Íslandspósts ohf,óska eftir tilboðum í flutninga á pósti og vörum á leiðinni milli Ísafjarðar og Hreðavatnsskála
Leiðin er með viðkomu á þeim póstafgreiðslum sem liggja milli þessara staða.
Ásamt því að sinna landpóstaþjónustu á viðkomandi leið
Flytjendur skulu hafa viðkomu á pósthúsum á leiðinni eins og nánar er kveðið á um í skilgreindri leiðar- og þjónustulýsingu
Þjónustan skal framkvæmd samkvæmt reglugerð um póstþjónustu, svo og eftir öðrum þeim reglum og ákvæðum, sem sett hafa verið og kunna að verða sett af Íslandspósti, varðandi póstflutninga og er seljandi ábyrgur fyrir því að þeim sé hlýtt