Ríkiskaup

Útboð

15070 - Rekstur mötuneytis Verkmenntaskólans á Akureyri

Ríkiskaup fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) óskar eftir tilboðum í rekstur á mötuneyti fyrir nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri og mötuneyti fyrir starfsmenn skólans.

Verksali skal sjá um rekstur tveggja aðskildra mötuneyta annars vegar fyrir nemendur og hins vegar starfsmenn Verkmenntaskólans á Akureyri. Í verkinu er fólgin framleiðsla og framreiðsla matar, afgreiðsla á öllum matvælum samkvæmt tilboðsblöðum, umsjón með matsölum og ræsting þess svæðis er heyrir undir verksala. Verksali sér sjálfur um kassakerfi og rekstur þess. Markmiðið með útboðinu er að tryggja sem lægst vöruverð samfara gæðum og góðri þjónustu en um leið að tryggja að fjölbreytileiki og hollusta í samsetningu matvæla uppfylli fjölbreyttar þarfir/kröfur viðskiptavina.


Titill

  • Opnunarfundur: 21.6.2011, 11:00
  • Staða: lokið / samningur
  • Fyrirspurnarfrestur:12.6.2011
  • Svarfrestur: 15.6.2011
  • Samið við: Lostæti Norðurlyst ehf. (kt. 670697-2239, Naustatanga 1, 600 Akureyri)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica