Ríkiskaup, fyrir hönd Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, óska eftir tilboðum í þvott á líni. Um er að ræða þvott á líni og frágang þess, þ.m.t. samanbrot, til afhendingar á línlager í þvottahúsi sjúkrahússins að Skólavegi 8, Keflavík. Ekki er gert ráð fyrir þvotti á einkafatnaði sjúklinga. Verkið skal framkvæma samkvæmt útboðsgögnum og öðrum þeim gögnum sem þar er vísað til. Útboðsgögn eru rafræn og aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is . Opnunartími tilboða er 31. maí kl.11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.