Útboð nr 15042 - Mötuneyti Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Í verkinu er fólgin framleiðsla og framreiðsla matar, afgreiðsla á öllum matvælum samkvæmt tilboðsblöðum, umsjón með matsölum og rekstur kassakerfis.
Markmiðið með útboðinu er að tryggja sem lægst vöruverð samfara gæðum og góðri þjónustu en um leið að tryggja að fjölbreytileiki og hollusta í samsetningu matvæla uppfylli fjölbreyttar þarfir/kröfur viðskiptavina.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, (www.rikiskaup.is), eigi síðar en miðvikudaginn 4. maí n.k. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 21. Júní 2011, kl. 15:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.