Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðarinnar, óska eftir tilboðum í eina notaða, vökvaskipta hjólaskóflu, u.þ.b. 12 tonn að stærð og með a.m.k. 120 hestafla vél. Hámarksaldur er árgerð 2007 og notkun 3000 klst. Heimilt er að bjóða nýja hjólaskóflu en hámarksverð er kr. 16 milljónir. Hjólaskóflan er aðallega ætluð til notkunar með vegsóp, snjóblásara og til moksturs. Afhending skal vera fyrir 15. ágúst 2011. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is. Opnunartími tilboða er 24. maí kl.11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.