Almennt um útboð

Prince 2 aðferðafræðin

Það sem einkennir verkefni eru skýrt afmarkaðar aðgerðir þar sem sett eru markmið um tíma, kostnað og gæði, sem og um önnur viðmið verkefnisins. Verkefni getur falið í sér einn eða fleiri verkáfanga sem hafa skilgreint upphaf og endi.

Hægt er að flokka verkefni eftir eðli þeirra (t.d. í fjárfestingar, rannsóknir og þróun, skipulag, upplýsingatækni) og öðrum einkennandi þáttum (t.d. innri/ytri, svæðisbundin, landsbundin, alþjóðleg). Hvert verkefni fyrir sig krefst skipulagningar mannauðs, efnislegra aðfanga og fjármuna sem tekur mið af markmiðum þess. Verkefni eru sjaldan vanaverk og því getur falist í þeim ákveðin óvissa og áhætta.

Verkefnastjórnun er aðferðafræði sem felur í sér undirbúning, skipulagningu, áætlanagerð, vöktun og eftirlit á öllum þáttum verkefnisins. Aðferðafræðin er hvetjandi fyrir þátttakendur til að ná markmiðum verkefnisins innan samþykktrar áætlunar um tíma, kostnað og frammistöðu eða árangur verkefnis.

Grunnþættir verkefnastjórnunar eru:

· að skilgreina markmið verkefnisins út frá tíma, kostnaði, og mælikvörðum um árangur

· að þróa og innleiða áætlun til að ná settum markmiðum

· að nota réttar aðferðir við stjórnun verkefnisins, áætlanagerð og eftirlit

· að nota hæfa starfsmenn, þar með talið verkefnastjóra, sem hafa umboð til að stýra og bera ábyrgð á árangri verkefnisins

 Verkefnastjórinn:

· ber ábyrgð á ræsfundi verkefnis og verklokum þess

· ber ábyrgð á framkvæmd verkefnis

· ber ábyrgð á að markmiðin náist

· tryggir að boðleiðir séu opnar milli hagsmunaaðila

· er hvetjandi gagnvart öðrum er tengjast verkefninu

· vinnur verkefninu brautargengi, bæði á hefðbundinn og óhefðbundinn hátt

(Heimild Hugtakalykill Verkefnastjórnunarfélags Íslands www.vsf.is)

 PRINCE2 (Projects IN Controlled Environments útg. 2) er sérstök aðferðarfræði til verkefnastjórnunar.  Það sem einkennir PRINCE2 er áherslan á viðskiptafærið (Business Case) verkefnisins sem rekur það áfram, réttlætir framvindu þess eða slær það ellegar af.  Helstu áherslur PRINCE2 verkefna eru:

?          Skýr markmið

?          Tímanlegur undirbúningur

?          Hvað á að gera ? >> Afurðir

?          Ekki hvernig á að gera

?          Áfangar >> Hvaða afurð skilar hver áfangi

?          Skilamat – Hvernig gekk?

 

Meira um PRINCE2 - http://www.ogc.gov.uk/methods_prince_2.asp



 

 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.