Ríkiskaup

Almennt um útboð

Verkefnastjórnun

Hjá Ríkiskaupum er aðferðum verkefnastjórnunarkerfisins PRINCE2 beitt í flestum stærri verkefnum. Þeir sem til þekkja vita að með verkefnastjórnun næst m.a. betri yfirsýn og agi yfir verkefnið auk þess sem gleggri mynd gefst af arðsemi og árangri.

Til fróðleiks má geta þess að dagana 15. - 17. nóvember næstkomandi verður haldin ráðstefnan Nordnet 2006 í Stokkhólmi í Svíþjóð en Verkefnastjórnunarfélag Íslands er aðili að samtökunum. Meginþema ráðstefnunnar verður "Leadership, Best Practice and Methods used in a global environment". Eins og kemur fram í kynningarefni ráðstefnunnar höfðar hún einkum til félaga í verkefnastjórnarfélögum á Norðurlöndum. Áhugi og athygli á verkefnastjórnun hefur farið sívaxandi síðustu misserin, hérlendis og erlendis enda aðferðir og verkefnakista verkefnastjórnunar skilað ótvíræðum árangri í smáum verkefnum og stórum hjá einkafyrirtækum og opinberum. Þetta hefur einnig komið fram skýrt fram í auknum áhuga á og aðsókn að atburðum Verkefnastjórnunarfélagsins síðastliðin ár.

Gera má ráð fyrir sérlega glæsilegri ráðstefnu á Grand Hótel í miðborg Stockholm enda umgjörð öll, innihald og bakhjarlar með því glæsilegasta sem sérst hefur á þessu sviði. Þegar er talsveður áhugi á ráðstefnunni hérlendis og eru áhugasamir hvattir til þess að kynna fylgjast með fréttum af ráðstefnunni með t.d. með því að skrá sig á vefsíðu hennar.

Þess má geta að Verkefnastjórnunarfélag Íslands fyrirhugar að halda Norndnet ráðstefnuna á næsta ári þ.e. 2007. Undirbúningsvinna er þegar hafin og munu fréttir af framvindu birtast reglulega á vef Verkefnastjórnunarfélagsins og í fréttabréfum til félagsmanna.




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica