14814 :: Gisting og veitingar innanlands-Rammasamningur
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði vegna gistingar og veitinga innanlands fyrir starfsmenn opinberra stofnana og sveitarfélaga, sem starfs síns vegna þurfa að ferðast, allan ársins hring Markmið útboðsins er að ná fram sparnaði í ferðakostnaði og nýta þannig skattfé almennings sem best
Breytt fyrirkomulag á greiðslum vegna útlagðs kostnaðar starfsmanna ríkisins er tilefni þessa útboðs, en í stað dagpeninga er nú greitt samkvæmt reikningi
Sú þjónusta sem verið er að leita eftir tilboðum í, er meðal annars í eftirfarandi vöruflokkum.:
1. Gisting með morgunverði
2. Hádegisverður og kvöldverður
3. Nestispakkar
4. Afsláttur vegna dvalar í lengri tíma
Heimilt er að bjóða í hluta eða allt.
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöru- eða þjónustuflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, eigi síðar en 10. mars. Opnunartími tilboða er 27. apríl 2010 kl. 11:00, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
- Opnunarfundur / Opening of tenders: 27.04.2010 kl.11:00
- Framvinda / Status: úrvinnsla tilboða
- Fyrirspurnarfrestur rennur út / Deadline for inquiries: 19.04.2010
- Svarfrestur rennur út / Deadline for response to inquiries : 23.04.2010
- Samið við / Contract awarded to :

