14802 :: Rekstur hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut
Ríkiskaup, fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytisins (kt. 540169-4119), leita eftir rekstraraðila til þess að reka hjúkrunarheimili að Suðurlandsbraut 66 í 6 ár með möguleika á framlengingu á grundvelli laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra og laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Heimilið er ætlað 110 hjúkrunarsjúklingum. Þar verða 70 almenn hjúkrunarrými fyrir aldraða og langveika og fjórar sérhæfðar einingar, 10 rými hver, fyrir geðsjúka, fólk yngra en 67 ára með heilabilun, hjúkrunardeild fyrir yngri en 67 ára og hvíldarinnlagnir fyrir heilabilaða yngri en 67 ára.
Hjúkrunarheimilið verður afhent fullbúið til reksturs. Móttaka heimilismanna skal hefjast í byrjun ágúst n.k. og á hjúkrunarheimilið að vera komið í fullan rekstur 1. september 2010, nema 10 rými sem ætluð eru fyrir hvíldarinnlagnir.
Markmiðið með rekstri hjúkrunarheimilisins við Suðurlandsbraut er að skapa heimili fólks sem vegna heilsu sinnar og aðstæðna er ekki lengur fært um að búa á eigin vegum með viðeigandi stuðningi og þarf á umönnun og hjúkrun að halda.
- Opnunarfundur / Opening of tenders: 07.04.2010 kl.11:00
- Framvinda / Status: lokið / samningur
- Fyrirspurnarfrestur rennur út / Deadline for inquiries: 31.03.2010
- Svarfrestur rennur út / Deadline for response to inquiries : 03.04.2010
- Samið við / Contract awarded to :

