Útboð í auglýsingu / Contract notice

14775 :: Þjónusta verktaka í iðnaði m/örútb.

Útboð nr 14775 - ATH Vegna mikils fjölda þátttakenda tilkynnist hér með að samningsgerð og taka tilboða fer þannig fram að tilboðum þeirra aðila sem valdir verða verður tekið með tilkynningu þar sem fram kemur að tilboði viðkomandi sé hér með tekið og þar með sé komin á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna nr. 14775 Þjónusta verktaka í iðnaði m/örútboði ásamt viðaukum fyrirspurnum og svörum og tilboðs viðkomandi aðila
Nýjar fyrirspurnir og svör hafa verið sett inn á vefinn í dag 23 júní 2010 ásamt eldri fyrirspurnum og svörum Athygli er vakin á því að settar hafa verið inn breytingar á nokkrum greinum útboðslýsingar í dag 16 júní 2010 og nýtt eyðublað fyrir Aðalverktaka
Fyrirspurnir og svör voru sett inn á vefinn 15 júní 2010 en þátttakendum er bent á að ákveðið hefur verið að fresta opnun á tilboðum í útboðinu um rúma viku það er til miðvikudagsins 30 júní 2010 kl 14 Skilafrestur tilboða er kl 13 sama dag það er 30 júní 2010 Fyrirspurnar- og svarfrestur færist til sem hér segir Fyrirspurnarfrestur er útrunninn 21 júní 2010 Svarfrestur er útrunninn 23 júní 2010
Sett hefur verið inn leiðrétting á gögnum en í aukaskjölum var gátlisti fyrir bjóðendur rangur Réttur listi er í útboðslýsingu og hefur nú verið leiðréttur í aukaskjölum
Ríkiskaup fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma standa fyrir þessu útboði vegna þjónustu verktaka í viðhaldsþjónustu endurnýjun og viðbótum á höfuðborgarsvæðinu. Heimilt er að bjóða í einstaka hluta viðkomandi iðngreinar í útboðinu Um er að ræða verktaka í eftirtöldum iðngreinum blikksmiði málun málmiðnaðarmenn (aðra en blikksmiði) múrara pípulagningamenn rafiðnaðarmenn og trésmiði sem uppfylla allar lögboðnar kröfur til að starfa við iðn sína.
Verktökum er ætlað að þjónusta viðhaldsverk, endurnýjun og viðbætur allt að 200 klst.
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöru- eða þjónustuflokka í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar. Kaupin fara eftir því hvernig kaupendahópurinn er samsettur á hverjum tíma. Ástæða útboðs þessar er nauðsyn þess að gefa iðnmeisturum jafnan rétt og jöfn tækifæri til keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu og að auka gagnsæi í þjónustukaupum ríkisins. Nánari skýringar á umfangi útboðsins má finna í rafrænum gögnum hér á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is frá og með miðvikudeginum 12. maí 2010. Væntanlegir þátttakendur eru hvattir til að kynna sér útboðsgögnin vel og vanda frágang allra umbeðinna upplýsinga. Heimilt er að standa fyrir örútboðum innan samningsins. Aðilum er jafnframt bent á fyrirspurnartíma útboðsins og mikilvægi þess að fylgjast með upplýsingum sem kunna að vera birtar á vef Ríkiskaupa. Útboðið verður opnað 22. júní 2010 kl. 14:00 hjá Ríkiskaupum að Borgartúni 7c, 105 Reykjavík að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

  • Opnunarfundur / Opening of tenders: 30.06.2010 kl.14:00
  • Framvinda / Status: úrvinnsla tilboða
  • Fyrirspurnarfrestur rennur út / Deadline for inquiries: 21.06.2010
  • Svarfrestur rennur út / Deadline for response to inquiries : 23.06.2010
  • Samið við / Contract awarded to :
 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.