14747 :: Rekstrarráðgjöf - Rammas.m.örútboð
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningakerfi Ríkiskaupa á hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði á rekstrarráðgjöf
Rekstrarráðgjöf er að færast í vöxt hjá hinu opinbera þar sem rekstur í stofnunum er sífellt að líkjast rekstri venjulegra fyrirtækja Nú er tækifæri til að hagræða í ríkisrekstri og auka skilvirknina Þörf fyrir rekstrarráðgjafa er því engu minni nú en áður. Um er að ræða eftirfarandi flokka:
- Stjórnun og stefnumótun
- Rekstrarráðgjöf um aðferðir, ferla, breytingar og uppbyggingu
- Ráðgjöf um starfsmannastjórnun og símenntun/endurmenntun
- Viðskipta og stjórnunarráðgjöf
Nánari lýsingu á umfangi útboðsins er að finna í kafla 2 í útboðslýsingu sem er aðgengileg hér að neðan.
Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð þann 15. desember kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Svör við fyrirspurnum verða ekki send bjóðendum í þessu útboði. Svör við fyrirspurnum og/eða viðbætur/leiðréttingar vegna útboðsins verða eingöngu birtar á vefsíðu Ríkiskaupa, hér fyrir neðan.
Sé óskað eftir nánari upplýsingum eða frekari skýringum, skal senda Ríkiskaupum skriflega fyrirspurn eigi síðar en 07. desember 2009. Fyrirspurnin skal merkt: Útboðsfulltrúi Ríkiskaupa v/14747 Rekstrarráðgjöf (myndsendir: 530 1414 eða netfang: utbod@rikiskaup.is).
Kynningarfundur hefur farið fram. Glærurnar frá fundinum má nálgast hér: http://www.rikiskaup.is/media/rammasamningar/14747-Rekstrarradgjof_Kynning.ppt .
- Opnunarfundur / Opening of tenders: 15.12.2009 kl.11:00
- Framvinda / Status: úrvinnsla tilboða
- Fyrirspurnarfrestur rennur út / Deadline for inquiries: 07.12.2009
- Svarfrestur rennur út / Deadline for response to inquiries : 10.12.2009
- Samið við / Contract awarded to :

