Útboð í auglýsingu / Contract notice

14482 :: Háskóli Íslands VR-1 - endurbætur

NÝTT 20 janúar 2010 - Svör við fyrirspurnum 1-10 ásamt nýrri tilboðsskrá er að finna hér fyrir neðan Framkvæmdasýsla ríkisins fh mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Háskóla Íslands óskar eftir tilboðum í gagngerar endurbætur innan dyra á VR1 tilraunahúsi Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands við Hjarðarhaga í Reykjavík. Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Framkvæmdin felst í að hreinsa úr stofum og geymslum innréttingar, hillur, skápa, lofta- og gólfefni, lyftu, loftræsingu, og rafmagn. Leggja nýtt rafmagn, loftræsingu, frárennslislagnir, loft- og gólfefni og hurðar á 1 og 2. hæð. Dýpka og breikka lyftugryfju, laga lyftustokk og setja upp nýja lyftu. Útbúa nýja salernisaðstöðu á 1. og 2. hæð. Málun innanhúss. Skipta um gler. Helstu magntölur: Rif á léttum veggjum 170 m2 - Rif á skápum 145 stk.- Loftræsing heildarendurnýjun - Lagnir heildarendurnýjun - Rafmagn heildarendurnýjun - Léttir gipsplötuveggir 160 m2 - Gólfdúkur 900 m2 - Kerfisloft 1400 m2 - Málun veggja 3000 m2 - Hurðir 45 stk. - Lyfta 1stk.- Glerskipti: 315 m2
Framkvæmdum við kennslusali á 2 hæð skal lokið þann 13. júlí 2010 og verkinu öllu þann 15. september 2010. Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.

  • Opnunarfundur / Opening of tenders: 26.01.2010 kl.14:00
  • Framvinda / Status: lokið
  • Fyrirspurnarfrestur rennur út / Deadline for inquiries: 19.01.2010
  • Svarfrestur rennur út / Deadline for response to inquiries : 22.01.2010
  • Samið við / Contract awarded to : Eykt ehf. kr. 153.844.892
 


RSS
 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.