Þessu riti er ætlað að vera gagnleg handbók um umhverfisvæn innkaup, þar sem reynt er að útskýra í hverju það hugtak felst og hvernig er hægt að hrinda þeim í framkvæmd. Ritið er einkum ætlað þeim sem sinna opinberum innkaupum, en ætti líka að gagnast öðrum sem áhuga hafa á að kynna sér viðfangsefnið.
Í 1. kafla er reynt að varpa ljósi á markmið með umhverfisvænum innkaupum og hvaða ávinningur fæst með umhverfismeðvitaðri innkaupastefnu. Í 2. kafla er að finna yfirlit yfir grundvallarsjónarmið sem hafa ber til hliðsjónar við umhverfisvæn innkaup, auk aðferða og hjálpargagna sem notuð eru. Í næstu köflum (3.-5. kafla) er að finna nánari leiðbeiningar um nokkrar helstu aðferðir við umhverfisvæn innkaup: Umhverfismerki, spurningar til birgja og umhverfiskröfur í útboðslýsingum. Röðun kaflanna er ekki tilviljunarkennd: Kaup á umhverfismerktum vörum er einfaldasta leiðin til þess að innleiða umhverfissjónarmið í innkaup og því eðlilegt fyrsta skref, en síðan er hægt að innleiða fleiri aðferðir, sem kosta kannski meiri fyrirhöfn.
Í 6. kafla er að finna leiðbeiningar um fyrstu skrefin sem hægt er að taka í því skyni að koma á umhverfisstefnu í innkaupum. Mótun slíkrar stefnu fer auðvitað alltaf nokkuð eftir eðli og umfangi starfsemi viðkomandi stofnunar eða fyrirtækis, en þó er hægt að hafa nokkrar þumalfingursreglur þar til hliðsjónar.
Í viðaukum er síðan að finna gátlista fyrir nokkra vöruflokka, upplýsingar um vöruflokka sem norræna umhverfismerkið nær til og yfirlit yfir nokkrar helstu upplýsingalindir varðandi umhverfisvæn innkaup, vilji menn auka þekkingu sína.